Milljón króna gjöf

Góð frétt var í Morgunblaðinu í gær, mættum við sjá fleiri slíkar

Mæðrastyrksnefnd fékk 1.000.000 kr að gjöf frá áhöfninni á Þerney

Frábært og fallega gert

 


Pappírskökur, hvítar

Þegar ég hóf búskap fyrir u.þ.b. 35 árum gerði ég eins og svo margar aðrar ungar konur að handskrifa í góða stílabók allskyns uppskriftir að góðum réttum, tertum og smákökum. Uppskriftirnar fengust hjá vinkonum, úr dagblöðum og af kakóboxi. Fyrir ca 4 árum lánaði ég bókina en fékk ekki aftur þrátt fyrir margar tilraunir, hún var bara týnd. En núna er ég glöð, í kvöld var gamla stílabókin mín komin á sinn stað í bókahillunni, hvernig hún komst þangað er og verður væntanlega ráðgáta næstu ára en hér er  ein uppskriftin sem heitir

Pappírskökur hvítar

í dag myndu þær kallast Muffins

250 gr sykur  og  

5 egg   þeytt saman 

250 gr smjörlíki     brætt og látið kólna       

250 gr hveiti 

1 tsk lyftiduft

1/2 tsk hjartarsalt

sítrónudropar (magn ekki gefið upp í bók)

Þurefni sigtuð saman, svo smjörlíki og eggjahræran

síðast sítrónudropar

sett í pappírsform og bakað við 200° í 12-13 mín

 

 


Þessi er mjöööög góð

Súpur er þema dagsins

Kjúklingasúpa

 

500 - 600 gr steikt kjúklingabringa

2 laukar, saxaðir

Lítil dós tómatpure

2 dósir kókosmjólk

1 lítri vatn

1-2 msk kjúklingakraftur

1 lítlill blaðlaukur, sneiddur

300 gr sneiddar gulrætur

1 rauð paprika, hreinsuð og skorin í strimla

Salt og pipar eftir smekk

 

Tómatpure og laukur sett í þykkbotna pott og hitað vel, best er ef við það að brenna við

Vatni, papriku, gulrótum og  kryddi bætt út í og soðið í  20 mín

Þá er kókosmjólk, blaðlauk og brytjuðum kjúklingnum bætt við og soðið áfram í 5 mín


Fiskisúpan mín

 

1 dós tómatar

1 stilkur sellery sneitt

1 laukur saxaður

2 stórar gulrætur sneiddar

1 paprika söxuð

1,5 lítrar vatn

1 hvítlaukur saxaður

1/2 msk grænmetis eða kjötkraftur

slatti af salvíu, rósmarin og balsiliku

allt í pottinn og látið malla

svo 500 -600 gr fiskur í bitum

salt og pipar eftir smekk

ég set stundum rjóma eða rjómaost í súpuna

ef þið eigið ekki allt kryddið þá bara sleppa þeirri sortinni


Gott brauð

Ég er ekkert svo nákvæm á málin, set yfirleitt slatta af þessu og hinu en svona er uppskriftin

670 gr hveiti

2 tsk salt

5 dl volgt vatn

1/2 poki ger

1 msk lyftiduft (má sleppa og nota þá 1 poka af geri)

1/2 tsk sykur

 

Öllu hrært saman.

Látið lyfta sér í 30 mín. ( einnig má hafa vatnið kalt og láta lyfta sér í ísskáp yfir nótt)

Mótað í tvö brauð og látið lyfta sér í 20 mín.

Bakað við 300° í 8 mín svo 200° í 20 mín.  Gott er að pensla brauðið með hvítlauksolíu. Einnig má setja smá oregano eða basiliku í brauðið.  

Önnur úrfærsla á þessu brauði

400 gr hveiti

100 gr hveitiklíð

50 gr sesamfræ

50-70 gr graskersfræ

2 tsk salt

5 dl volgt vatn

1/2 poki ger

1 msk lyftiduft

2-3 hvítlauksrif söxuð  og sett í 3 msk olívuolíu

Í þetta brauð er líka gott að setja slatta af söxuðum olívum og/eða sólþurrkaða tómata.

Öllu blandað saman og sama aðferð við bakstur og hér að ofan


5% álag á myntkörfulán

 Ég eins og svo margir aðrir hef áhyggjur af myntkörfuláni svo ég fór í bankann og spurðist fyrir um þann möguleika að frysta myntkörfulán í einhvern tíma. Þar var mér sagt að í það minnsta 5% álag á lánsfjárhæð bættist við út lánstímann og gæti álagið orðið jafnvel hærra.Ekki er það hagstæður kostur ef satt er. Þá kom upp sú spurning að fresta afborgun, einni eða fleirum og setja þær afborganir  aftast  í afborgunarpakkann, jú það er hægt en kostnaður er talsverður þar sem þinglýsa þarf þá láni aftur. 

Svo eftir þessa eftirgrennslan er ég ekkert í betri málum þrátt fyrir þær “lausnir“ sem boðið er upp á þessa dagana.

Allavega þarf að hugsa dæmið vel og vandlega áður en farið er í þessar breytinar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband