Gott brauð

Ég er ekkert svo nákvæm á málin, set yfirleitt slatta af þessu og hinu en svona er uppskriftin

670 gr hveiti

2 tsk salt

5 dl volgt vatn

1/2 poki ger

1 msk lyftiduft (má sleppa og nota þá 1 poka af geri)

1/2 tsk sykur

 

Öllu hrært saman.

Látið lyfta sér í 30 mín. ( einnig má hafa vatnið kalt og láta lyfta sér í ísskáp yfir nótt)

Mótað í tvö brauð og látið lyfta sér í 20 mín.

Bakað við 300° í 8 mín svo 200° í 20 mín.  Gott er að pensla brauðið með hvítlauksolíu. Einnig má setja smá oregano eða basiliku í brauðið.  

Önnur úrfærsla á þessu brauði

400 gr hveiti

100 gr hveitiklíð

50 gr sesamfræ

50-70 gr graskersfræ

2 tsk salt

5 dl volgt vatn

1/2 poki ger

1 msk lyftiduft

2-3 hvítlauksrif söxuð  og sett í 3 msk olívuolíu

Í þetta brauð er líka gott að setja slatta af söxuðum olívum og/eða sólþurrkaða tómata.

Öllu blandað saman og sama aðferð við bakstur og hér að ofan


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband